

Ég fæddist í Vestmannaeyjum 15. febrúar 1990. Ég er gift Aroni Tomma Skaftasyni, lífupplýsingafræðingi, og við eigum saman tvö börn, Nökkva (7) og Iðunni (4). Foreldrar mínir eru Íris Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur og kennari, og Valur Örn Gíslason, pípulagningameistari.Eftir að ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni hóf ég nám við Háskóla Íslands og lauk þaðan BA-gráðu í almennri bókmenntafræði með sænsku sem aukagrein. Í kjölfarið flutti ég til Svíþjóðar þar sem ég stundaði nám til meistaragráðu í Norðurlandafræðum frá Uppsala Universitet og síðar lauk ég einnig meistaragráðu í stafrænni upplýsingastjórnun frá Högskolan i Borås.Nú starfa ég sem teymisstjóri og sérfræðingur á Mennta- og menningarsviði Rannís. Áður hef ég starfað sem teymisstjóri og sérfræðingur hjá Universitets- och högskolerådet í Svíþjóð, starfað í sendiráði Íslands í Stokkhólmi, verið verkefnastjóri hjá Norræna félaginu og sinnt kennslu bæði í fullorðinsfræðslu og sem leiðbeinandi á leikskóla.Ég hef gegnt trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna í Kópavogi sem varamaður í stjórn og sit jafnframt sem varamaður í Menntaráði Kópavogs. Ég sit í stjórn Visku, stéttarfélags háskólamenntaðra, og er trúnaðarmaður starfsmanna á mínum vinnustað. Þá sit ég í foreldraráði Leikskólans Marbakka og sat áður í foreldraráði Leikskólans Rjúpnahæðar.



Hafa samband
Ég tek glöð á móti samtölum og skilaboðum svo endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna.







